Fotbolti.net
15.07.21 - 16:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Englendingar ætla að læra af VAR notkuninni á EM

Michael Oliver að störfum á EM.

Michael Oliver að störfum á EM.

Canon

Mynd: EPA

Notkunin á VAR myndbandsdómgæslunni á EM alls staðar hefur fengið verðskuldað hrós og vakið upp umræðu um hversu illa framkvæmdin á VAR var í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Unnið er að því að VAR muni ekki hafa eins truflandi áhrif á leikina.

Fimm enskir dómarar sem störfuðu á EM með góðum árangri munu funda með kollegum sínum þegar þeir snúa aftur úr sumarfríi. Farið verður yfir það af hverju VAR notkunin lukkaðist svona miklu betur á EM en í ensku úrvalsdeildinni.

Könnun sem var gerð um mitt síðasta tímabil leiddi í ljós að stór hluti fótboltaáhugafólks var komið með upp í kok af VAR og töldu að tæknin myndi gera leikinn verri.

VAR þótti hinsvegar virka á hjálplegan hátt á EM alls staðar og enska úrvalsdeildin vill læra af notkuninni á mótinu. Á EM var það aðaldómarinn sem var miðpunkturinn í öllum ákvörðunum og VAR aðeins notað í augljósum mistökum. Tæknin hafði því lítil áhrif á flæði leiksins og var ekki truflandi.
Lee Mason orðinn sérhæfður VAR dómari
Hinn reynslumikli dómari Lee Mason er búinn að leggja flautuna á hilluna og er hann nú orðinn fyrsti sérhæfði VAR dómarinn í ensku úrvalsdeildinni.

Mason dæmdi í fimmtán ár í ensku úrvalsdeildinni en er nú kominn í fullt starf við VAR dómgæslu. Talið er að þetta sé skref í átt að því að bæta VAR tæknina í enska boltanum.
Lee Mason.

Lee Mason.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.