Alvarez: Þetta er bara fótboltaleikur

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Julian Alvarez verður í fremstu víglínu hjá Argentínu gegn Englandi í undanúrslitaleik liðanna á HM í kvöld.
Alvarez þekkir enska liðið vel enda fyrrum leikmaður Man City.

„Ég þekki nokkra því ég bjó á Englandi en ég hef ekki fengið tækifæri til að mæta þeim í landsleik. Þetta verður sérstakur leikur út af andstæðingnum en líka því þetta eru undanúrslit," sagði Alvarez.
Það er mikil saga milli þessara þjóða í sögu HMen Diego Maradona skoraði umdeildasta mark sögunnar árið 1986 þar sem hann skoraði með 'hönd guðs'. Þá fékk David Beckham rautt spjald fyrir að sparka í Diego Simeone árið 1998. Þá vann England Argentínu á leið sinni í átt að sigri á HM 1966.
„Þetta er sérstakur leikur því hann á sér langa sögu eins og við vitum öll. Allavega, þetta er bara fótboltaleikur og það sem skiptir mestu máli er að þetta er undanúrslitaleikur á HM. Ég held að lykilatriðið fyrir okkur sé að einbeita okkur að sjálfum okkur og gera það sem við þurfum að gera," sagði Alvarez.