Fotbolti.net
15.07.26 - 21:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: 14 ára innsiglaði sigur Breiðabliks

Líf Joostdóttir van Bemmel

Líf Joostdóttir van Bemmel

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik 4 - 1 Víkingur R.
1-0 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('73 )
2-0 Líf Joostdóttir van Bemmel ('76 )
3-0 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('79 )
3-1 Bergdís Sveinsdóttir ('90 )
4-1 Ólöf Margrét Marvinsdóttir ('92 )
Lestu um leikinn
Breiðablik fékk Víking í heimsókn í Bestu deild kvenna í kvöld. Kristín Dís Árnadóttir fékk úrvalsfæri til að koma Blikum yfir eftir tuttugu mínútna leik. Hún átti skalla í slá og boltinn fór aftur í hana en Víkingar björguðu á síðustu stundu.

Blikar brutu ísinn þegar rúmlega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Líf Joostdóttir van Bemmel fann Edith Kristínu Kristjánsdóttir inn á teignum og hún skoraði.

Líf skoraði síðan frábært mark þremur mínútum síðar. Sex mínútum eftir fyrsta markið skoraði Ólöf Sigríður Kristinsdóttir þriðja markið.

Bergdís Sveinsdóttir skoraði sáramótamark fyrir Víking undir lokin. Það var síðan Ólöf Margrét Marvinsdóttir, sem er fædd árið 2011, sem innsiglaði sigur Breiðabliks.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik16+2636
2FH16+2333
3Stjarnan16+626
4ÍBV16-324
5Grindavík/Njarðvík16-222
6Þróttur R.16-321
7Þór/KA16-318
8Valur16-1216
9Fram16-1716
10Víkingur R.16-1514
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.