Fotbolti.net
15.07.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Einkunnir Englands og Argentínu: Englendingar í brasi - Messi maður leiksins

Einkunnir Englands og Argentínu: Englendingar í brasi - Messi maður leiksins
Canon

Mynd: EPA

Ríkjandi heimsmeistarar Argentínu fá tækifæri til að verja titilinn á sunnudaginn eftir dramatískan endurkomusigur á Englandi í kvöld.

The Guardian gaf leikmönnum liðanna einkunnir fyrir frammistöðu sína í kvöld. Djed Spence og Anthony Gordon voru bestu leikmenn Englands. Gordon skoraði mark liðsins og Spence átti góðan leik en hann bjargaði marki með frábærri tæklingu stuttu eftir að liðið komst yfir.

Harry Kane hafði ekki úr miklu að moða og þá urðu skiptingar Thomas Tuchel Englandi af falli.

Lionel Messi var valinn maður leiksins en hann lagði upp bæði mörk Argentínu. Hann fær níu í einkunn en sjö leikmenn fá átta. Þar á meðal markaskorararnir Enzo Fernandez og Lautaro Martínez.
England: Pickford (7), James (7), Stones (7), Guéhi (7), Spence (8), Anderson (7), Rice (6), Rogers (7), Bellingham (6), Gordon (8), Kane (5).
Varamenn: Konsa (5), Burn (5), O’Reilly (6), Toney og Rashford (Spiluðu of lítið)

Argentína: Martínez (6), Molina (6), Romero (8), Martínez (7), Tagliafico (5), Paredes (5), Fernández (8), Mac Allister (8), Simeone (6), Messi (9), Álvarez (8).
Varamenn: González (8), Otamendi (7), Montiel (7), De Paul (8), Martínez (8).

Einkunnir Englands og Argentínu: Englendingar í brasi - Messi maður leiksins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.