Fá Thorgan Hazard fyrir Saint-Maximin (Staðfest)

Mynd: Lens

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Lens
Lens hefur staðfest félagaskipti fyrir belgíska kantmanninn Thorgan Hazard sem rann út á samningi hjá Anderlecht í sumar.

TENGT EFNI
Saint-Maximin til Bandaríkjanna
Hazard er 33 ára gamall og snýr aftur til uppeldisfélagsins Lens með þessum félagaskiptum, eftir fjórtán ára fjarveru.
Hazard gerir tveggja ára samning við Lens, sem endaði afar óvænt í öðru sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð.
Hazard átti gott tímabil með Anderlecht þar sem hann kom með beinum hætti að 26 mörkum í 46 leikjum, sem er umtalsvert betra heldur en framlag hans hefur verið á síðustu árum.
Hann kom við sögu í 17 leikjum með Lens tímabilið 2011-12 en fylgdi stóra bróður sínum Eden Hazard til Chelsea eftir leiktíðina. Thorgan var lánaður til Zulte-Waregem og Borussia Mönchengladbach áður en þýska félagið festi kaup á honum sumarið 2015.
Thorgan varð lykilmaður hjá Gladbach og var að lokum seldur til Borussia Dortmund. Þar reyndi hann fyrir sér á láni hjá PSV Eindhoven áður en Anderlecht klófesti hann fyrir þremur árum.
Það verður afar áhugavert að fylgjast með kantmanninum snúa aftur í frönsku deildina. Hann er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Lens í sumar eftir Saud Abdulhamid og Michaël Cuisance.
Hazard tekur sæti Allan Saint-Maximin í leikmannahópi Lens, en Saint-Maximin er kominn til Charlotte FC sem leikur í MLS deildinni í Bandaríkjunum.
Saint-Maximin er 29 ára gamall og kom með beinum hætti að 7 mörkum í 13 leikjum á tæplega hálfu ári hjá Lens.

???? ????????????????-???????????????????? ???????????????? : « Le retour d’un ancien de la maison est un beau symbole, qui plus est un pur produit de La Gaillette. Thorgan va nous apporter sa capacité à lire et accélérer le jeu, sa qualité de passe et son leadership. »#LesLensois2 pic.twitter.com/98Tr1MzjB7
— Racing Club de Lens (@RCLens) July 13, 2026

Mynd: EPA

Mynd: EPA