HM í dag - England og Argentína mætast

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
England og Argentína eigast við í seinni undanúrslitaleik heimsmeistaramótsins og hefst leikurinn um kvöldmatarleytið.
Þjóðirnar keppast um sæti í úrslitaleik gegn Spáni, sem fer fram á sunnudaginn.
Argentína og England hafa ekki mæst í keppnisleik síðan á HM 2002 þegar England átti þátt í að slá Argentínu úr leik í riðlakeppni. David Beckham skoraði eina markið í innbyrðisviðureign liðanna úr vítaspyrnu.
Á HM 1998 hafði Argentína betur eftir vítaspyrnukeppni gegn Englandi í 16-liða úrslitum, en þar áður mættust liðin í 8-liða á HM 1986 þegar Diego Maradona skoraði ódauðlega tvennu.
Fyrra markið skoraði Maradona með „hendi guðs" og það seinna gerði hann eftir að hafa hlaupið hálfan völlinn með boltann og sýnt listir sínar til að leika á hálft enska landsliðið.
England lagði Argentínu að velli á HM 1962 og 1966 og eru þjóðirnar því aðeins að mætast í sjötta sinn í keppnisleik.
Leikur kvöldsins
19:00 England - Argentína