Fotbolti.net
15.07.26 - 22:55
Elvar Geir Magnússon

Messi skoraði ekki en tók samt forystuna um gullskóinn

Messi var með lykilinn.

Messi var með lykilinn.

Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi skoraði ekki í 2-1 sigri Argentínu á Englandi í undanúrslitum HM í kvöld. Hann átti hinsvegar tvær stoðsendingar og hann er því kominn með alls fjórar stoðsendingar á mótinu.

Hann og Frakkinn Kylian Mbappe hafa báðir skorað átta mörk en Messi færist nú fremstur í kapphlaupið um gullskóinn þar sem Mbappe hefur þrjár stoðsendingar. Ef leikmenn eru jafnir í markaskorun þá ræður fjöldi stoðsendinga hvor er ofar.
Sjáðu HM mörkin: Geggjuð argentínsk endurkoma
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Geggjuð argentínsk endurkoma

Lionel Messi (Argentína - 8 mörk, 4 stoðs)
Kylian Mbappe (Frakkland - 8 mörk, 4 stoðs)
Erling Haaland (Noregur - 7 mörk)
Jude Bellingham (England - 6 mörk, 1 stoðs)
Harry Kane (England - 6 mörk, 1 stoðs)
Ousmane Dembele (Frakkland - 5 mörk, 2 stoðs)
Mikel Oyarzabal (Spánn - 5 mörk, 1 stoðs)

Allir þessir sjö leikmenn, fyrir utan Haaland, eiga eftir að leika einn leik á mótinu. Frakkland og England leika um þriðja sætið á laugardag áður en Spánn og Argentína mætast í úrslitaleiknum á sunnudag.

„England reyndi að læsa en Lionel Messi var með lykilinn. Hann algjörlega stýrði sýningunni í lokin," segir sparkspekingurinn Joe Hart.
Messi skoraði ekki en tók samt forystuna um gullskóinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.