Fotbolti.net
15.07.26 - 14:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Orri á blaði hjá ítölsku stórliði - Á áhugaverðum lista

Orri Steinn Óskarsson.

Orri Steinn Óskarsson.

Canon

Mynd: Instagram/orrioskarsson

Orri Steinn Óskarsson er sagður á lista hjá ítalska stórliðinu Juventus en félagið er í leit að sóknarmanni.

Luca Momblano, blaðamaður sem sérhæfir sig í fréttum tengdum Juventus, segir að Frederic Massara, yfirmaður fótboltamála hjá Juventus, sé aðdáandi íslenska landsliðsfyrirliðans.
Orri hefur verið á mála hjá Real Sociedad í tvö ár. Hann hefur skorað 17 mörk í 62 leikjum fyrir félagið í öllum keppnum.

Hann var mikið meiddur á síðasta tímabili en náði engu að síður að skora níu mörk í La Liga. Markahlutfall Orra vakti athygli á Spáni, en hann skoraði að meðaltali 0,98 mörk á hverjum 90 mínútum sem hann spilaði í deildinni og skákaði þar stórstjörnum á borð við Mbappe og Lamine Yamal.

Orri hefur verið orðaður við Venezia á Ítalíu en núna er ítalskt stórlið komið inn í myndina.

Orri á meðal „moneyball" leikmanna"
Orri Steinn er á meðal þeirra ungu leikmanna sem skera sig úr í nýju gagnadrifnu leikmannaleitarlíkani sem Rohit Kumaran, greinandi hjá New York Red Bulls, er að setja upp.

Kumaran segist hafa unnið það upp úr gögnum frá Wyscout með það að markmiði að finna unga leikmenn áður en þeir slá endanlega í gegn og verðmiðinn hækkar verulega.

Orri, sem er 21 árs, er einn fjögurra framherja sem koma sérstaklega vel út úr líkaninu. Hinir eru Umar Abubakar hjá Famalicao, Mohamed Yassir Zabiri hjá Rennes og Max Dean hjá Genk.

„Hugmyndin á bak við 'moneyball' snýst ekki endilega um að finna leikmenn utan fimm stærstu deilda Evrópu. Hún snýst um að bera kennsl á leikmenn á borð við Adam Wharton, Carlos Baleba og Rayan áður en þeir slá í gegn, og komast þannig hjá því að greiða það háa verð sem fylgir þegar allir eru farnir að sjá gæðin," segir Kumaran.

Orri var keyptur til Sociedad fyrir 20 milljónir evra en hann er í dag metinn á þá sömu upphæð samkvæmt Transfermarkt.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Orri fagnar marki með Sociedad á síðustu leiktíð.

Orri fagnar marki með Sociedad á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: EPA

Orri er fyrirliði íslenska landsliðsins.

Orri er fyrirliði íslenska landsliðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.