Fotbolti.net
15.07.26 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Sommer fenginn sem arftaki fyrir Mignolet (Staðfest)

Sommer fenginn sem arftaki fyrir Mignolet (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Belgísku meistararnir í Club Brugge eru búnir að tryggja sér þjónustu hins þaulreynda Yann Sommer sem gerir þriggja ára samning.
Költhetjan Sommer hafnar Spáni fyrir Belgíu
TENGT EFNI

Költhetjan Sommer hafnar Spáni fyrir Belgíu

Sommer tekur við markmannsstöðunni af Belganum Simon Mignolet sem lagði hanskana á hilluna eftir síðustu leiktíð.

Sommer hefur verið aðalmarkvörður Inter síðastliðin þrjú ár. Hjá félaginu varð hann Ítalíumeistari og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, en þar áður hafði hann spilað fyrir FC Bayern og Borussia Mönchengladbach í Þýskalandi.

Sommer, sem verður 38 ára í desember, gerði garðinn frægan sem landsliðsmarkvörður Sviss en lagði hanskana á hilluna eftir EM 2024.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.