Fotbolti.net
15.08.04 - 10:23
Hafliði Breiðfjörð

El Hadji Diouf til Bolton (Staðfest)

El Hadji Diouf til Bolton (Staðfest)
Canon
El Hadji Diouf leikmaður Liverpool gekk í dag í raðir Bolton Wanderers á eins árs láni. Diouf kostaði Liverpool 10 milljónir punda er hann var keyptur rétt fyrir HM 2002 en nýji stjórinn, Rafael Benítez sagði hann ekki í myndinni hjá sér. Þannig úthlutaði Benítez treyjunúmeri Diouf, 9, til Djibril Cisse, fyrr í sumar en úthlutaði Diouf svo nýju númeri, 19, um miðja vikuna. Diouf hafði áður hafnað því að ganga til liðs við Malaga á Spáni og Portsmouth áður en hann samþykkti að spila með Bolton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.