Fotbolti.net
15.08.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Immobile leggur skóna á hilluna

Immobile leggur skóna á hilluna
Canon

Mynd: EPA

Ítalski framherjinn Ciro Immobile hefur lagt skóna á hilluna. Þessi 36 ára gamli leikmaður lauk ferlinum hjá Paris FC í Frakklandi.

Immobile var að kljást við meiðsli á síðustu leiktíð. Hann kom við sögu í 12 leikjum og skoraði tvö mörk.
Hann sló í gegn hjá Lazio frá 2016-2024 þar sem hann skoraði 207 mörk í 340 leikjum.

Hann fór ungur að árum til Juventus en hann spilaði einnig með Siena, Grosseto, Pescara, Genoa, Torino, Borussia Dortmund, Sevilla, Lazio, Besiktas, Bologna og Paris FC.

Þá var hann Evrópumeistari með ítalska landsliðinu á EM 2020. Hann spilaði 57 landsleiki og skoraði 17 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.