15.09.26 - 20:14
Brynjar Ingi Erluson
Rekinn frá bikarmeisturunum eftir aðeins sex leiki (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýski þjálfarinn Dino Toppmöller hefur verið rekinn frá frönsku bikarmeisturunum í Lens eftir aðeins sex leiki.
Toppmöller tók við af Pierre Sage hjá Lens eftir að sá síðarnefndi samdi við Crystal Palace á Englandi.
Þjóðverjanum hefur ekki tekist að halda liðinu á sama skriði og það var á síðustu leiktíð.
Hann vann PSG í Ofurbikar Frakklands í sínum fyrsta leik og vann einnig fyrsta leikinn í deildarkeppni Meistaradeildarinnar, en hefur aðeins náð í einn sigur í frönsku deildinni.
Árangurinn var þó ekki ástæða brottrekstursins. Lens tjáði Toppmöller að félagið vildi losa sig við annan af tveimur aðstoðarmönnum hans, Nelson Morgado, en því tók Toppmöller ekki í mál.
Hann stóð við bakið á sínum manni og á endanum ákvað Lens að reka þá báða.
Yannick Cahuzac mun stýra liðinu gegn Mónakó.

Communiqué officiel du Racing Club de Lens.
— Racing Club de Lens (@RCLens) September 15, 2026
?? https://t.co/tUICCGwz3g#RCLens pic.twitter.com/TdwyV6zn1t