Fotbolti.net
15.10.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besti leikmaður Fram framlengir

Besti leikmaður Fram framlengir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram hefur tilkynnt að Kennie Chopart hafi framlengt samning sinn til næstu tveggja ára. Kennie er að klára sitt þriðja tímabil með liðinu en hann er fyrirliði liðsins.
Hann hefur án nokkurs vafa verið besti leikmaður liðsins á tímabilinu en Fram situr í 3. sæti deildarinnar fjórum stigum á eftir KR þegar tvær umferðir eru eftir.

Kennie hefur spilað 24 leiki í Bestu deildinni í sumar, skorað tíu mörk og lagt upp tvö. Hann hefur aldrei skorað jafn mörg mörk á einu tímabili.

Hann er 36 ára gamall Dani en hann kom fyrst hingað til lands árið 2012 til að spila með Stjörnunni. Hann hefur einnig spilað með Fjölni og KR.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.