Fotbolti.net
16.04.15 - 21:29
Daníel Freyr Jónsson

Jón Þór: Aldrei spurning um sigur ÍA

Auglýsing
Jón Þór Hauksson.

Jón Þór Hauksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson, aðstoðarþjálfari ÍA, var að vonum ánægður með sína menn eftir 5-1 sigur liðsins á Fjölni í Lengjubikarnum í kvöld.

Skagamenn höfðu mikla yfirburði allan leikinn og var sigur þess aldrei í hættu.
,,Mér fannst leikurinn mjög góður af okkar hálfu. Strax frá upphafi komum við mjög vel stemmdir og þetta var að mínu mati aldrei spurning um sigurinn,\" sagði Jón.

,,Mér fannst strákarnir vera virkilega gíraðir í verkefnið strax frá upphafi og stóðu sig vel.\"

Skagamenn mæta sigurliðinu úr viðureign Fylkis og KA á sunnudag í undanúrslitum.

,,Við hlökkum til að spila þann leik og virkilega gott að fá hörkuleik á sunnudaginn. VIð erum ánægðir með það.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.