Fotbolti.net
16.04.24 - 10:00
Hafliði Breiðfjörð

Víkingur setti styrktarþjálfarann inná - Fór í faðm þjálfara Fram eftir leikinn

Styrktarþjálfarinn Óskar Örn gengur af stað til að hita upp leikmenn Víkinga í gær. Hann þurfti að sjá til þess að hann væri sjálfur klár í að koma inná líka ef þjálfarinn veldi það.

Styrktarþjálfarinn Óskar Örn gengur af stað til að hita upp leikmenn Víkinga í gær. Hann þurfti að sjá til þess að hann væri sjálfur klár í að koma inná líka ef þjálfarinn veldi það.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þegar Guðjón Örn Ingólfsson styrktarþjálfari Víkings ákvað að söðla um í haust og skipta í uppeldisfélag sitt, KR voru góð ráð dýr enda vaxa góðir styrktarþjálfarar ekki á trjánum.
Besta deildin: Víkingur marði Fram eftir umdeilda dómgæslu
TENGT EFNI

Besta deildin: Víkingur marði Fram eftir umdeilda dómgæslu

Víkingum datt í hug að kanna hug goðsagnarinnar Óskar Arnar Haukssonar til þess að taka að sér starfið en hann hafði verið að dempa niður leikmannaferilinn og var kominn í Grindavík í Lengjudeildinni.

Óskar Örn sló til en vildi aldrei setja að ferlinum væri lokið, heldur mætti hann alltaf með takkaskó í þjálfunina og spilaði með Víkingum í leikjum á undirbúningstímabilinu.

Þegar Besta-deildin hófst með leik Víkings og Stjörnunnar fyrr í mánuðinum var hann hinsvegar bara styrktarþjálfari en ekki leikmaður. Það breyttist í gærkvöld, Óskar Örn var skráður á skýrslu og þegar liðið var í basli með Framara var ákveðið að stökkva til og leita í reynsluna.

Óskar Örn kom inná síðustu 10 mínúturnar inn á vinstri kantinn fyrir Valdimar Þór Ingimundarson. Þegar leiknum lauk féll hann svo í faðm Rúnars Kristinssonar þjálfara Fram. Þeir voru í fjölda ára saman í KR og urðu þarna miklir endurfundir. Myndir fylgja með.
Óskar Örn kemur inná í fyrsta leik sínum í Bestu-deildinni með Víkingi.

Óskar Örn kemur inná í fyrsta leik sínum í Bestu-deildinni með Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Innkastið</b> - Víkingur vinnur leiki sem Valur vinnur ekki

Þegar Óskar Örn hitti Rúnar eftir leik.

Þegar Óskar Örn hitti Rúnar eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

...og féll í faðm hans.

...og féll í faðm hans.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur setti styrktarþjálfarann inná - Fór í faðm þjálfara Fram eftir leikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Glatt á hjalla.

Glatt á hjalla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Takk fyrir komuna.

Takk fyrir komuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.