Fotbolti.net
16.06.17 - 21:53
Arnar Daði Arnarsson
Skrifar frá: Kópavogsvelli

Óli ósáttur með leikjaniðurröðunina: Afskaplega illa skipulagt

Auglýsing
Óli ósáttur með leikjaniðurröðunina: Afskaplega illa skipulagt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Ólafur Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar var vonsvikinn eftir 1-0 tap gegn Breiðabliki í 8. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld.
„Ég er ósáttur með að vinna ekki. Þetta snýst einfaldlega um það. Við hefðum getað spilað betur í fyrri hálfleik, það var smá stress í byrjun en mér fannst við vinna okkur ágætlega inn í þennan leik og vorum mikið betri í seinni hálfleik. Í þessum leikjum milli þessara liða er alltaf barátta og í þessu tilfelli var það frábært mark frá Fanndísi sem réði úrslitum,\" sagði Ólafur sem er byrjaður að nota Hörpu Þorsteinsdóttur meira og meira en hún spilaði tæplega hálftíma í kvöld.

„Okkar lið snýst ekki um Hörpu, það kemur í ljós hvernig ástandið á mannskapnum. Hún kom vel inn í dag og hún er góð í fótbolta. Hún þarf að halda áfram að koma sér í stand, hún hefur verið að skila sínu fyrir hópinn og liðið. Það er sama með hana og allar aðrar, þegar við þurfum á henni að halda og þegar hún er klár, þá spilar hún. Ég get engu lofað hvenær hún er inn eða úti.\"

Náði engri góðri æfingu fyrir leikinn
Viðtalið eftir leik fór fljótt út í það að tala um leiktímann á þessum leik sem er vægast sagt furðulegur. Heil umferð í Pepsi-deild kvenna var leikin í kvöld, þremur sólarhringum eftir landsleik Íslands og Brasilíu á Laugardalsvelli.

„Það er hrikalega stutt á milli leikja núna. Það eru tveir dagar frá því sumar voru að spila topplandsleik. Þetta er óskiljanleg uppröðun finnst mér. Ég náði engri góðri æfingu fyrir leikinn með þeim leikmönnum sem voru í landsliðsverkefninu. Þær komu frá Írlandi af einhverjum blautum velli og síðan spiluðu þær frábæran leik gegn Brasilíu. Það var hvíld, skokk og róleg heit fyrir þær svo þær væru klárar í þennan leik,\" sagði Ólafur sem starfar sem sjúkraþjálfari og segir þetta áhyggjuefni upp á framhaldið.

„Við sáum það, að það sat þreyta í leikmönnum beggja liða. Mér finnst þetta varhugavert fyrir framhaldið. Við erum að fara spila fimm leiki á fimmtán dögum. Ef menn vilja fá landsliðsleikmennina sína meidda inn í landsliðsverkefni þá er þetta leiðin til þess finnst mér. Mér finnst þetta afskaplega illa skipulagt og ég er ósáttur með þetta,\" sagði Ólafur en Fanndís Friðriksdóttir leikmaður Breiðabliks var til að mynda búin á því í seinni hálfleik og var tekin útaf tíu mínútum fyrir leikslok.

Hefði viljað spila þennan leik á sunnudaginn
„Það þýðir ekkert að væla núna, við hefðum þurft að gera þessar athugasemdir í vor. En við verðum að hugsa um það, þegar allir eru að reyna standa sig í deildinni og allir vilja undirbúa leikmennina sem best fyrir landsliðið þá verða allir að taka þátt í því, en ekki að skella fimm leikjum á fimmtán daga og ætlast til að fá leikmennina heila til baka. Það er eina sem ég óttast.\"

Ólafur segir að hann hafi ekki séð þetta fyrir, fyrir mót þegar hann kíkti á leikjaniðurröðunina.

„Það var ekki búið að tilkynna þennan landsleik gegn Brasilíu í vor þegar við fórum yfir þetta. Síðan bætist inn bikarleikur. Ég þekki ekki alveg UEFA leikdagana og afhverju landsliðið þarf að koma saman hálfum mánuði fyrir mótið. Kannski er það samkvæmt UEFA. Kannski hefðum við getað spilað þennan leik á sunnudaginn og fært þetta aðeins aftar, en ég þekki ekki alveg reglurnar.\"

„Mér finnst þetta ekki besti undirbúningurinn fyrir landsliðið, upp á það að það hefur verið mikið af meiðslum þar og það má ekki bæta á það. Það eru allir að reyna sitt besta og standa sig í deildinni en líka að hugsa til þess að allir séu í sínu besta standi fyrir EM í Hollandi. Kannski er ekki hægt að gera þetta öðruvísi nema byrja fyrr. Ég hefð viljað spila þennan leik á sunnudaginn og gefa landsliðsmönnunum meira frí, svo það sé meiri líkur á að þær haldist heilar. Knattspyrnusambandið setur þetta upp svona og við verðum að reyna vinna sem best úr því, en það má ekki bitna á liðunum,\" sagði Ólafur að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Óli ósáttur með leikjaniðurröðunina: Afskaplega illa skipulagt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Óli ósáttur með leikjaniðurröðunina: Afskaplega illa skipulagt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli ósáttur með leikjaniðurröðunina: Afskaplega illa skipulagt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.