16.07.04 - 15:59
Hafliði Breiðfjörð
Babbel til Stuttgart (Staðfest)




Marcus Babbel er orðinn leikmaður Stuttgart í Þýskalandi eftir ða hafa komist að samkomulagi við félagið og undirgengist læknisskoðun í dag. Babbel sem er 31 árs gamall hefur verið á mála hjá Liverpool undanfarin ár en var síðsta tímabil á láni hjá Blackburn. Fyrir það hafði hann þjáðst af alvarlegum sjúkdómi sem varð meðal annars til þess að hann fór allra sinna ferða í hjólastól. Hann vann hinsvegar bug á sjúkdómnum og snéri aftur á völlinn.
Babbel sagði: ,,Ég vildi ekki spila fyrir annað enskt lið því Liverpool er svo sérstakt svo það væri ekki eins að fara annað. Af þessari ástæðu tel ég best að snúa aftur til heimalandsins og spila fyrir gott lið eins og Stuttgart."
Babbel skoraði 6 mörk í 73 leikjum fyrir Liverpool en hann var keyptur frá Bayern Munchen árið 2000.
Babbel skoraði 6 mörk í 73 leikjum fyrir Liverpool en hann var keyptur frá Bayern Munchen árið 2000.
