Davíð Helgi á leið í dönsku úrvalsdeildina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Helgi Aronsson, sem er á láni hjá Keflavík frá Víkingi, er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið til danska félagsins Lyngby.
Hann fer þangað á eins árs lánssamningi og hefur danska félagið möguleika á því að kaupa Davíð Helga af Víkingi á meðan láninu stendur.

TENGT EFNI
Meiri líkur á að Kári sjái frændur sína saman í landsliðinu en í Víkingi
Davíð er örvfættur varnarmaður sem hefur einnig spilað á miðjunni hjá Keflavík. Hann er fæddur árið 2007 og á að baki 18 leiki fyrir yngri landsliðin. Þar af eru 13 leikir og eiitt mark með U19 landsliðinu.
Hann hefur verið í lykilhlutverki í liði Keflavíkur sem hefur komið á óvart í Bestu deildinni og situr í 6. sæti eftir 14 umferðir.
Lyngby er mikið Íslendingafélag og í dag spila þeir Ísak Snær Þorvaldsson og Daníel Freyr Kristjánsson með liðinu. Lyngby komst upp úr 1. deildinni í vor og verður í dönsku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.