Jói Bjarna í FH á láni út tímabilið (Staðfest)

Á láni út tímabilið.

Mynd: FH

Á láni út tímabilið.

Mynd: FH
Jóhannes Kristinn Bjarnason er genginn til liðs við FH á láni frá Víkingi út tímabilið. Hann getur spilað sinn fyrsta leik með FH gegn Breiðabliki á mánudag.
Hann hefur verið í litlu hlutverki hjá Víkingi framan af tímabili en hann gekk í raðir Íslandsmeistarana frá Kolding fyrir tímabil.
Jóhannes er frændi nafna síns og þjálfara FH, Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Hann er fæddur árið 2005 og á að baki 10 leiki fyrir U21-landsliðið.

„Jóhannes er búinn að sýna og sanna að hann er toppleikmaður í þessari deild og hann kemur til með að styrkja okkur mikið á lokasprettinum í deildinni,“ er haft eftir Davíð Þór Viðarssyni, yfirmanni fótboltamála FH, í tilkynningu félagsins.