Lampard fær miðvörð frá Frankfurt (Staðfest)

Mynd: Coventry City

Mynd: Coventry City
Nýliðar Coventry City hafa fest kaup á svissneska miðverðinum Aurele Amenda frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt.
Amenda er 22 ára og lék 42 deildarleiki með Frankfurt á tveimur tímabilum sínum hjá félaginu.
Varnarmaðurinn hóf feril sinn hjá Young Boys í heimalandinu og varð bæði svissneskur deildar- og bikarmeistari tímabilið 2022-2023.
Hann var hluti af svissneska landsliðshópnum sem tók þátt á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar, en kom ekkert við sögu á mótinu. Amenda á að baki sjö A-landsleiki fyrir Sviss.
Coventry hefur nú klófest varnarmanninn frá Frankfurt fyrir 17 milljónir punda og skrifaði hann undir langtímasamning við félagið.
„Ég er ótrúlega ánægður og það er mikill heiður að vera kominn hingað. Strax eftir fyrsta símtalið frá stjóranum fann ég fyrir traustinu og leist vel á verkefnið. Mér finnst þetta vera mjög gott næsta skref fyrir mig.“
„Ég get ekki beðið eftir að hitta alla hjá félaginu, sérstaklega stuðningsmennina, en auðvitað einnig nýju liðsfélagana.“
„Ég vil fyrst og fremst verja markið en líka taka þátt í spilinu. Ég er rólegur á boltanum og get því hjálpað liðinu á þann hátt. Ég vil vinna leiki og hjálpa félaginu að ná árangri.“
„Ég hlakka mikið til að spila á þessum fallega leikvangi, hitta stuðningsmennina og fagna með þeim. Ég vil líka skora mörk hér og get varla beðið eftir að byrja,“ sagði Amenda.

Amenda is Cov. ???? pic.twitter.com/GkkPvJUifN
— Coventry City (@Coventry_City) July 16, 2026