Sambandsdeildin: Stjörnumenn áfram eftir flotta endurkomu í Færeyjum

Stjarnan er komin áfram í 2. umferð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðmundur Kristjánsson fór meiddur af velli

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stjarnan er komin áfram í 2. umferð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Víkingur Götu 2 - 2 Stjarnan (3-5 samanlagt)
1-0 Aron Benjaminsen ('58 )
2-0 Sölvi Vatnhamar ('61 )
2-1 Birnir Snær Ingason ('67 )
2-2 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('81 )
Lestu um leikinn
1-0 Aron Benjaminsen ('58 )
2-0 Sölvi Vatnhamar ('61 )
2-1 Birnir Snær Ingason ('67 )
2-2 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('81 )
Lestu um leikinn
Stjörnumenn eru komnir áfram í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir 2-2 jafntefli gegn Víkingi Götu í Djúpumýri í Klaksvík í Færeyjum í kvöld.
Stjarnan vann fyrri leikinn í Garðabæ 3-1 þar sem Emil Atlason skoraði þrennu og mætti því með tveggja marka forskot inn í síðari viðureignina.
Lítið var um færi í fyrri hálfleik, en Stjörnumenn urðu fyrir áfalli á 17. mínútu þegar Guðmundur Kristjánsson þurfti að fara meiddur af velli. Alex Þór Hauksson kom inn í hans stað.
Heimamenn komust yfir þegar þrettán mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Gustav Kjeldsen hreinsaði hornspyrnu frá, en boltinn barst til Aron Benjaminsen sem skaut í gegnum þvöguna. Boltinn virtist hafa viðkomu í varnarmanni áður en hann hafnaði framhjá Árna Snæ Ólafssyni.
Aðeins þremur mínútum síðar skallaði Sölvi Vatnhamar fyrirgjöf Inga Jonhardssonar í netið og staðan í einvíginu orðin jöfn.
Stjörnumenn fundu hins vegar neistann og Birnir Snær Ingason minnkaði muninn á 67. mínútu. Jóhann Árni Gunnarsson sendi aukaspyrnu inn á teiginn, Örvar Eggertsson skallaði boltann út á Birni sem skoraði.
Guðmundur Baldvin Nökkvason jafnaði síðan leikinn fjórtán mínútum síðar eftir klaufaleg mistök hjá markverði heimamanna.
Daníel Finns Matthíasson sendi hornspyrnu inn á teiginn sem Barður á Reynatroð missti undir sig. Guðmundur var fljótur að átta sig og skilaði boltanum í netið.
Það reyndist síðasta mark leiksins og Stjörnumenn fögnuðu 5-3 sigri samanlagt eftir frábæra endurkomu.
Stjarnan mætir Ilves frá Finnlandi í 2. umferð. Leikirnir fara fram 23. og 30. júlí.