Sveik samkomulagið við Roma og fór til Juventus (Staðfest)

Mynd: Juventus

Mynd: Juventus
Ítalska félagið Juventus fór illa með Roma með því að stela tyrkneska hægri bakverðinum Zeki Celik á elleftu stundu, en hann hefur nú verið kynntur sem nýr leikmaður Juventus.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hafði leikið með Roma í fjögur ár við góðan orðstír.
Samningur hans rann út um síðustu mánaðamót, en Rómverjar voru í jákvæðum viðræðum um að halda honum. Félagið taldi sig í góðri stöðu til að ganga frá nýjum samningi áður en Juventus blandaði sér óvænt í málin á ögurstundu og landaði leikmanninum.
Celik hafði náð munnlegu samkomulagi við Roma um að vera áfram, en hvarf frá því og ákvað þess í stað að skrifa undir þriggja ára samning við Juventus.
Bakvörðurinn á að baki 61 A-landsleik fyrir Tyrkland og hefur skorað þrjú mörk.

Zeki Celik è un nuovo giocatore della Juventus ????
— JuventusFC (@juventusfc) July 16, 2026
Benvenuto! ?? https://t.co/dKzjnZ4Z4N pic.twitter.com/1rlWj1mEPJ