Fotbolti.net
16.07.26 - 00:18
Elvar Geir Magnússon

Þegar Messi baðaði sex mánaða Yamal

Messi baðar Yamal.

Messi baðar Yamal.

Canon

Mynd: Af netinu

Lionel Messi og Lamine Yamal mætast í úrslitaleik HM á sunnudag, þegar Argentína og Spánn eigast við. Það kemur því ekki á óvart að um allt á samfélagsmiðlum er verið að rifja upp þegar Messi baðaði Yamal á sínum tíma.

Messi og Yamal fóru í myndatöku 2007 þegar sá síðarnefndi var aðeins sex mánaða gamall. Myndatakan var hluti af dagatali sem var selt til styrktar góðgerðasamtaka.

Messi var tvítugur á þessum tíma en nú um nítján árum seinna eru þeir að fara að mætast í stærsta fótboltaleik heimsins. Þess má til gamans geta að faðir Yamal er þremur árum yngri en Messi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.