Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. ágúst 2022 15:46
Elvar Geir Magnússon
U15: Gils Gíslason með tvö í 4-0 sigri í Færeyjum
Gils Gíslason skoraði tvö.
Gils Gíslason skoraði tvö.
Mynd: FH
U15 ára landslið drengja vann 4-0 sigur gegn Færeyjum í vináttulandsleik sem fram fór í Tóftum í dag. Liðið leikur annan leik gegn færeyska liðinu á fimmtudag.

Íslenska liðið hafði mikla yfirburði í leiknum í dag og skoraði Thomas Ari Arnarsson, leikmaður Vals, fyrsta mark leiksins.

Það var svo FH-ingurinn Gils Gíslason sem skoraði tvö mörk í leiknum. Hann skoraði annað mark Íslands fyrir hálfleik og bætti svo við í seinni hálfleik. Gabríel Snær Hallsson, leikmaður Breiðabliks, skoraði fjórða mark leiksins.

Lúðvík Gunnarsson þjálfar U15 liðið.


Athugasemdir
banner
banner