Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 16. október 2020 08:30
Victor Pálsson
Hassenhuttl: Vonandi verður Werner óánægður eftir leikinn
Mynd: Getty Images
Ralph Hassenhuttl, stjóri Southampton, hefur hrósað kaupum Chelsea á Timo Werner en þeir þekkjast nokkuð vel.

Werner og Hassenhuttl unnu saman hjá RB Leipzig um tíma áður en sá síðarnefndi tók við Southampton.

Vinirnir tveir munu hittast um helgina þegar Southampton og Chelsea eigast við í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég hef unnið með mörgum leikmönnum og hann er einn af þeim fljótustu. Það er mjög erfitt að spila gegn honum," sagði Hassenhuttl.

„Hann er að verða fullkomnari framherji í dag og er að læra mikið. Þetta eru frábær kaup fyrir Chelsea. Werner er aðeins ánægður þegar hann skorar svo ég vona að hann verði óánægður eftir leikinn!"

„Þeir hafa ekki séð það besta af honum í treyju Chelsea í fyrstu leikjunum. Hann hefur aðeins skorað eitt mark í bikarnum held ég."

Athugasemdir
banner
banner
banner