Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   fim 16. nóvember 2023 11:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kristján Arnar ráðinn þjálfari kvennaliðs Vestra (Staðfest)
Mynd: Vestri
Vestri verður með lið í 2. deild kvenna á komandi tímabili. Þjálfarastarfið var auglýst á dögunum og í dag var kynntur nýr þjálfari.

Það er Kristján Arnar Ingason sem á að hefja enduruppbyggingu meistaraflokks kvenna sem var síðast með lið á Íslandsmóti árið 2013.

„Kristján mun fá það verkefni að hefja enduruppbyggingu meistaraflokks kvenna sem síðast spilaði á Íslandsmóti 2013. Meistarflokksráð Vestra er himinlifandi með ráðningu Kristjáns sem er þrautreyndur þjálfari sem mun hjálpa stelpunum í liðinu að ná framförum og árangri. Liðið er að mestu leyti skipað ungum leikmönnum og er því frábært að fá inn reynslumikinn þjálfara til að hefja vegferðina," segir í tilkynningu Vestra.

„Kristján er með UEFA-B þjáfaragráðu og 5. stig frá KSÍ. Hann byrjaði þjálfun hjá Val 1999. Hann var 7 ár hjá Fylki ýmist sem yfirþjálfari yngri flokka kvenna eða þjálfari 3. flokki kvenna og karla. Hann var yfirþjálfari Hauka í 5 ár og þjálfaði einnig meistarflokk kvenna hjá Haukum. Eftir það þjálfaði hann yngri flokka hjá Val og þar á meðal 2. flokki kvenna."

„Það er mikið ánægjuefni að knattspyrnudeild Vestra skuli aftur tefla fram kvennaliði með góðum fyrirmyndum fyrir yngri knattspyrnuiðkendur ásamt því að heimastelpur geta nú spilað fyrir sitt lið í sinni heimabyggð."


Kristján Arnar er skólastjóri Grunnskólans á Ísafirði.
Athugasemdir
banner
banner
banner