Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 17. janúar 2021 17:50
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho ósáttur með mistök Davies: Geta gert gæfumuninn
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho var ánægður með frammistöðu sinna manna í sigri gegn Sheffield United í dag en ósáttur með einföld mistök í seinni hálfleik.

Tottenham fór inn í leikhlé með tveggja marka forystu en Sheffield minnkaði muninn í síðari hálfleik þegar David McGoldrick skallaði knöttinn í netið.

Mourinho er ósáttur með mistök sem Ben Davies gerði en hann átti að dekka McGoldrick.

„Við vorum mjög góðir í fyrri hálfleik og hefðum getað verið fjórum mörkum yfir. Svo gerðum við einföld mistök og okkur var refsað en við náðum aftur stjórn á leiknum með ótrúlegu marki. Hann (Tanguy Ndombele) er ótrúlegur, þetta mark kórónaði frábæra frammistöðu," sagði Mourinho.

„Við gerðum einföld mistök sem hefðu getað breytt leiknum. Við hefðum þurft að spila síðasta hálftímann undir gríðarlegri pressu. Það er mikilvægt að gera ekki þessi einföldu mistök, þau geta gert gæfumuninn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner