Lið vikunnar í enska - Coutinho í góðum félagsskap

Astton Villa kom til baka gegn Manchester United og gerði 2-2 jafntefli, Úlfarnir unnu Southampton 3-1 og Rafa Benítez var rekinn eftir 2-1 tap Everton gegn Norwich.
Garth Crooks hjá BBC hefur valið úrvalslið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni.

Markvörður: Jose Sa (Wolves) - Portúgalinn heldur áfram að spila virkilega vel í rammanum.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Grant Hanley (Norwich) - Algjör hermaður í öfustu línu í sigrinum nauðsynlega gegn Everton.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Frábær varnarmaður sem býr líka usla í teig andstæðingana.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Conor Coady (Wolves) - Skoraði og stóð fyrir sínu í vörninni. Úlfarnir hafa verið að sækja góð úrslit.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Jack Harrison (Leeds) - Þrenna gegn West Ham. Algjörlega mögnuð frammistaða.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Philippe Coutinho (Aston Villa) - Mættur aftur í enska boltann og stimplaði sig inn með marki gegn Manchester United.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Kevin de Bruyne (Manchester City) - Skoraði sigurmarkið gegn Chelsea með hnitmiðuðu skoti.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Bruno Fernandes (Manchester United) - Skoraði bæði mörk United um helgina, það seinna var virkilega fallegt.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Raphinha (Leeds) - Algjör skemmtikraftur og hann reyndist Hömrunum erfiður ljár í þúfu.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Raheem Sterling (Manchester City) - Farinn að sýna sínar bestu hliðar að nýju og var beittur gegn Chelsea.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Adam Idah (Norwich) - Idah skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir Norwich í langþráðum sigri.

Mynd: Getty Images

Svona er lið vikunnar.

Mynd: BBC



