Raphinha og Camavinga til Manchester - Thuram til ensks toppliðs - Newcastle með plan ef Isak fer
banner
   mán 17. mars 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Miðasala á heimaleiki Íslands hefst á morgun
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið á fyrir höndum tvo heimaleiki í Þjóðadeild UEFA og KSÍ hefur gefið út að miðasala fyrir leikina hefjist klukkan 12:00 á morgun.

Leikirnir fara fram á AVIS vellinum í Laugardal, heimavelli Þróttar, og mætir Ísland liði Noregs föstudaginn 4. apríl og Sviss þriðjudaginn 8. apríl. Báðir leikir hefjast klukkan 16:45.

Miðasalan fer fram á Stubb.is, hægt verður að tryggja sér miða hér.

Miðaverð er 3500 kr. fyrir fullorðna en 1750 kr. fyrir 16 ára og yngri. Athugið að takmarkað magn miða er í boði, eða um þúsund miðar.

Karlalandsliðið á „heimaleik" í Murcia á Spáni næsta sunnudag. Hægt er að kynna sér þá miðasölu hér.

Athugasemdir
banner
banner