Fotbolti.net
17.05.26 - 12:40
Ívan Guðjón Baldursson

Falur á frjálsri sölu eftir að hafa spilað hverja einustu mínútu

Doekhi yfirgefur félagið ásamt portúgalska miðverðinum Diogo Leite.

Doekhi yfirgefur félagið ásamt portúgalska miðverðinum Diogo Leite.

Canon

Mynd: EPA

Danilho Doekhi spilaði 90 mínútur síðustu tvær umferðir þýska deildartímabilsins er Union Berlin gerði vel að sigra gegn Mainz og Augsburg.
Doekhi er eftirsóttur miðvörður sem hefur spilað hverja einustu mínútu í þýsku deildinni síðan í janúar 2024. Það eru næstum því liðin tvö og hálft ár síðan Doekhi missti síðast af deildarleik.

Union Berlin er búið að reyna að semja við Doekhi en leikmaðurinn vill reyna fyrir sér hjá nýju félagi. Hann þráir nýja áskorun á ferlinum. Þetta staðfesti Union Berlin með tilkynningu á dögunum.

Það er mikill áhugi á honum frá Sádi-Arabíu en Leeds United, Aston Villa og Borussia Dortmund eru einnig áhugasöm ásamt Wolfsburg og PSV Eindhoven.

Leeds berst við Dortmund og félög frá Sádi-Arabíu
TENGT EFNI

Leeds berst við Dortmund og félög frá Sádi-Arabíu



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.