Víkingur greindi frá afar leiðinlegum fréttum í tilkynningu í vikunni. Markvörðurinn öflugi Ingvar Jónsson greindist með illkynja krabbamein.
„Víkingur mun styðja þétt við bakið á Ingvari og fjölskyldu hans í þessu erfiða verkefni og erum við þess fullviss um að hann hafi sigur að lokum, enda fæddur sigurvegari," segir í yfirlýsingunni.
„Víkingur og fjölskylda Ingvars óska eftir því að fjölmiðlar sýni Ingvari og fjölskyldu skilning á þessum erfiðu tímum og veiti þeim svigrúm og næði til að takast á við verkefnið framundan. Virðingarfyllst, Víkingur."
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, ræddi við Sýn Sport fyrir leik Víkings gegn ÍBV í dag.
„Þetta var gríðarlegt áfall fyrir hópinn að heyra, eins og gefur að skilja. Ingvar er búinn að vera gríðarlega mikilvægur fyrir okkur, bæði innan og utan vallar. Virkilega góð persóna sem fær þessar erfiðu fréttir," segir Sölvi við Sýn.
„Við þurfum að tækla þetta saman sem ein liðsheild. Við ætlum að standa þétt við bakið á Ingvari og hans fjölskyldu."




