Man City ætlar að fá Tonali og Anderson

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Man City er að íhuga alvarlega að fá Sandro Tonali, miðjumann Newcastle, ásamt Elliot Anderson, miðjumann Nottingham Forest. The Athletic greinir frá þessu.
The Athletic greindi frá því í gær að Tottenham hafi átt góð samskipti við umboðsteymi Tonali en Lundúnarfélagið mun fá harða samkeppni frá Man City.

Áhugi City á Tonali hefur ekki áhrif á áhuga félagsins á Anderson en félagið er tilbúið að kaupa báða sem þýðir að félagið þarf líklega að eyða rúmlega 200 milljónum punda í þá.
City þarf að bæta miðsvæðið þar sem Bernardo Silva er farinn til Real Madrid á frjálsri sölu. Þá bíður City eftir svari frá Rodri hvort hann vilji vera áfram hjá félaginu.