Messi: Fannst eins og ég hefði brugðist liðinu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lionel Messi var tilfinningaríkur eftir ótrúlegan 3-2 sigur Argentínu á Egyptalandi í 16-liða úrslitum á HM í kvöld.
Egyptaland náði tveggja marka forystu en Messi klikkaði á vítaspyrnu í stöðunni 1-0. Hann jafnaði metin í 2-2 eftir að Cristian Romero hafði minnkað muninn þegar ellefu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Það var síðan Enzo Fernandez sem tryggði sigurinn með marki í uppbótatíma.

„Ég fann fyrir mikilli reiði út af vítinu sem ég klúðraði og hvernig ég tók það. Mér fannst, í þessu mikilvæga augnabliki, að ég hefði brugðist liðinu," sagði Messi.
„En sem betur fer hafði guð eitthvað sérstakt í vændum fyrir mig enn eina ferðina og ég gat skorað jöfnunarmarkið. Þetta var mikill léttir, óendanleg gleði fyrir okkur og stuðningsmennina sem mættu aftur og sanna á hverjum degi hvað það þýðir að vera Argentínumaður."