Fotbolti.net
07.07.26 - 22:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sölvi um meiðsli Elíasar: Reykjavíkurborg þarf að rífa sig upp og gera betur

Elías studdur af velli

Elías studdur af velli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Már Ómarsson er mögulega alvarlega meiddur á hné eftir að hann festist í grasinu á Víkingsvelli í leik Víkings gegn Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, leikmaður kvennaliðs Víkings, sleit krossband á vellinum í síðasta mánuði og þá lenti liðsfélagi hennar, Shaina Ashouri, í því sama í september í fyrra.
Elías Már virtist meiðast illa á hné
TENGT EFNI

Elías Már virtist meiðast illa á hné

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 0 Györ
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sendi Reykjavíkurborg skilaboð í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld.

„Ég hef ekki fengið neinar fréttir aðrar en þær að þetta lítur ekki vel út, þetta er einhver snúningur á hnéið. Það er ekki boðlegt að það sé boðið upp á þetta gras þar sem við erum búnir að vera flaggberar Íslands á erlendri grundu og erum fulltrúi íslenskrar knattspyrnu og það sé ekki búið að koma með betra gras hingað," sagði Sölvi Geir.

„Við sáum það í kvenna knattspyrnunni líka. Það var krossbandaslit hjá okkur í kvennaboltanum og núna vonandi ekki það alvarleg meiðsli. En menn eru að festast í grasinu og mér finnst að Reykjavíkurborg þurfi aðeins að fara rífa sig upp og hjálpa félögum og gera betur í þessum málum."
Ísfold Marý borin af velli

Ísfold Marý borin af velli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi eftir sigur: Kom okkur á óvart að meistarar frá Ungverjalandi myndu mæta svona

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.