Markvörður Lazio á leið til Inter

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalski markvörðurinn Ivan Provedel er á leið til Ítalíumeistara Inter frá Lazio.
Provedel er 32 ára gamall og hefur staðið á milli stanganna hjá Lazio frá árinu 2022.
Árið 2023 var hann valinn besti markvörður ítölsku deildarinnar og hefur hann verið mjög áreiðanlegur hjá Rómarliðinu.
Fabrizio Romano segir að hann sé nú á leið í vistaskipti. Provedel er að ganga í raðir Inter fyrir þrjár milljónir evra, þar sem hann verður Josep Martínez til halds og trausts.
Yann Sommer hefur verið aðalmarkvörður Inter síðustu ár, en samningur hans rennur út um mánaðamótin og ljóst er að hann er á förum frá félaginu.