Fotbolti.net
17.07.04 - 11:40
Magnús Már Einarsson

Savo Milosevic til Osasuna (Staðfest)

Milosevic er hér til hægri.

Milosevic er hér til hægri.

Canon
Framherjinn Savo Milosevic hefur gert þriggja ára samning við lið Osasuna í La Liga. Milosevic sem að er þrítugur kemur frítt til Osasuna frá Parma en ítalska liðið leyfði honum að fara þrátt fyrir að hann hafi átt eitt ár eftir af samningi sínum við liðið.
Kappinn sem að er frá Serbíu og Svartfjallalandi lék með Celta Vigo á láni á síðustu leiktíð en þrátt fyrir að hann skoraði fjórtán mörk þá dugði það ekki til að bjarga liðinu frá falli.

Celta Vigo er núna að losa sig við launahæstu menn sína, Silvinho er farinn til Barcelona og þá er franski miðjumaðurinn Peter Luccin nálægt því að ganga til liðs við Atletico Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.