Fotbolti.net
17.07.26 - 21:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Aubameyang semur við nýliða í spænsku úrvalsdeildinni (Staðfest)

Aubameyang semur við nýliða í spænsku úrvalsdeildinni (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Pierre-Emerick Aubameyang er genginn til liðs við Deportivo La Coruna sem er nýliði í spænsku úrvalsdeildinni.

Aubameyang er 37 ára framherji frá Gabon en hann þekkir vel til á Spáni þar sem hann spilaði með Barcelona árið 2022. Hann er einnig fyrrum leikmaður Arsenal og Chelsea.
Hann skrifar undir tveggja ára samning við Deportivo en hann gengur til liðs við félagið frá Marseille.

Deportivo komst upp í La Liga í vetur og verður í spænsku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn síðan tímabilið 2017-18.

Aubameyang hefur á sínum félagsliðaferli skorað 369 mörk í 735 leikjum. Fjórtán af þeim komu í 41 leik á liðnu tímabili. Hann á að baki 86 landsleiki og hefur í þeim skorað 40 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.