Fotbolti.net
17.07.26 - 15:19
Kári Snorrason

Bríet Fjóla í Þrótt (Staðfest)

Á að baki 15 yngri landsleiki.

Á að baki 15 yngri landsleiki.

Canon

Mynd: Þróttur

Hertz
Bríet Fjóla Bjarnadóttir er gengin í raðir Þróttar frá Þór/KA. Samningur Bríetar var að renna út eftir tímabil en félögin komust að samkomulagi um félagaskipti í glugganum.
Bríet, sem er fædd árið 2010, er einn efnilegasti leikmaður deildarinnar en hún var aðeins þrettán ára þegar hún spilað sinn fyrsta leik í Bestu deildinni.

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var þjálfari Þórs/KA þegar Bríet Fjóla þreytti frumraun sína.

Hún hefur í sumar komið við sögu í sex deildarleikjum með Þór/KA en hún er á leið í skóla á höfuðborgarsvæðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.