Fotbolti.net
17.07.26 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Edon frá Keflavík til grannanna (Staðfest)

Edon frá Keflavík til grannanna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edon Osmani hefur yfirgefið Keflavík og er mættur til grannanna í Víði Garði.

Edon er fæddur árið 2000 og hefur leikið yfir 50 leiki fyrir Keflavík. Hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum í Bestu deildinni í sumar.

„Edon þarf vart að kynna fyrir stuðningsmönnum, enda lék hann bæði með yngri flokkum félagsins og síðar meistaraflokki. Hann snýr nú aftur til félagsins frá Keflavík, þar sem hann hefur leikið undanfarin tímabil. Það er afar öflugt að fá þennan liðsstyrk fyrir komandi átök í toppbaráttunni og hlökkum við til að sjá hann aftur í Víðistreyjunni," segir í tilkynningu Víðis.
Víðir er í toppsæti 3. deildar og á leik gegn KH á heimavelli í kvöld. Sóknarmaðurinn er kominn með leikheimild og má spila í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víðir19+3142
2KH19+3138
3Tindastóll19+1538
4Reynir S.19+1636
5KV19-129
6KF19-426
7Sindri19-823
8Höttur19-722
9Augnablik19-721
10Ýmir19-1419
1119-2519
12Árbær19-278
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.