FHL fær spænskan miðjumann frá Völsungi (Staðfest)

Mynd: FHL

Mynd: FHL

Spænski miðjumaðurinn Marta Rodriguez Sierra er gengin til liðs við FHL í Lengjudeildinni.
Marta er 27 ára og kemur til FHL frá Völsungi, en hún lék átta leiki með Húsvíkingum á fyrri hluta tímabilsins.
Hún er miðjumaður að upplagi en getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum.
Áður lék Marta með CD Femarguin á Kanaríeyjum.
FHL situr í áttunda sæti Lengjudeildarinnar með tíu stig. Liðið hefur þó unnið tvo síðustu leiki sína og náð að spyrna sér upp úr fallsæti.