Fotbolti.net
17.07.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Fjölnir búinn að finna framherja í stað Plaza (Staðfest)

Joana Roig Verge er komin til Fjölnis í stað Plaza

Joana Roig Verge er komin til Fjölnis í stað Plaza

Canon

Mynd: Fjölnir

Hertz
Fjölnir hefur kvatt spænska framherjann Ainhoa Plaza Porcel og fengið Joana Roig Verge í stað hennar fyrir komandi átök í 2. deildinni.
Plaza yfirgaf Fjölni á dögunum eftir magnaða byrjun á tímabilinu þar sem hún skoraði tólf mörk í sjö leikjum.

„Hún féll fljótt inn í leikstíl og menningu félagsins og varð mikilvægur hluti af liðsheildinni. Á tíma sínum hjá Fjölni var hún jafnframt fyrirmynd margra ungra iðkenda með ástríðu sinni fyrir leiknum og faglegri framkomu, jafnt innan sem utan vallar. Við erum afar þakklát fyrir að hafa fengið að njóta krafta Ainhoa hjá Fjölni og þökkum henni innilega fyrir hennar framlag til félagsins. Við óskum henni velfarnaðar í næsta kafla á ferlinum og alls hins besta í komandi verkefnum,“ var skrifað í tilkynningu Fjölnis sem var ekki lengi að finna arftaka hennar.

Joana kemur inn í hóp Fjölnis í stað Plaza. Hún er einnig spænsk og hefur verið afar iðin við markaskorun með Atletico Baleares undanfarin ár, þar sem hún hefur skorað 60 mörk.

Hún getur leyst allar stöður framarlega á vellinum, býr yfir miklum hraða og les leikinn vel. Samningur hennar við Fjölni gildir út yfirstandandi tímabil.

Joana lék sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar hún kom inn af bekknum í 2-1 tapi gegn Fylki á dögunum.

„Ég er virkilega ánægð með að vera komin til Fjölnis. Liðið lítur mjög vel út og stemningin er frábær. Ég hef mikla trú á því sem við getum áorkað saman og mun leggja mig alla fram til að styðja liðsfélaga mína og hjálpa okkur að ná markmiðum okkar á þessu tímabili,“ sagði Joana við undirskrift.

Ainhoa Plaza kvaddi á dögunum

Ainhoa Plaza kvaddi á dögunum

Canon

Mynd: Fjölnir

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Einherji9+5124
2Fylkir9+5722
3Fjölnir9+3622
4Vestri9+3421
5Afturelding9+2521
69-813
7Augnablik10-2013
8Dalvík/Reynir9-911
9KFR10-427
10ÍR9-164
11Álftanes10-322
12Smári10-761
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.