Ísak fær nýjan liðsfélaga frá Man City (Staðfest)

Mynd: Köln

Mynd: Köln
Reigan Heskey er genginn til liðs við Köln frá Man City. Kaupverðið er um sex milljónir punda.
Heskey er 18 ára gamall vængmaður en hann skrifar undir fjögurra ára samning með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.
Heskey er sonur Emile Heskey, fyrrum landsliðsmanns Englands og leikmanns Liverpool.
Hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri City gegn grönnum sínum í Man Utd í úrslitum í bikarkeppni unglingaliða á síðustu leiktíð. City fær ákveðna upphæð af söluverði og getur keypt hann aftur fyrir óuppgefna upphæð.
Köln hafnaði í 14. sæti þýsku deildarinnar á síðustu leiktíð en Ísak Bergmann Jóhannesson er á mála hjá félaginu.