Landsliðsmaður Bosníu til Leeds (Staðfest)

Mynd: Leeds

Mynd: Leeds
Tarik Muharemovic er genginn í raðir Leeds frá Sassuolo fyrir 34 milljónir punda. Það gerir hann að næst dýrasta leikmanni í sögu félagsins á eftir Georginio Rutter sem gekk til liðs við félagið frá Hoffenheim fyrir rúmlega 35 milljónir punda í janúar 2023.
Muharemovic er 23 ára gamall miðvörður frá Bosníu og Hersegóvínu. Hann skrifar undir fimm ára samning við enska félagið.
Hann er annar leikmaðurinn sem Leeds fær til sín í sumar á eftir Harry Wilson sem gekk til liðs við félagið á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Fulham rann út.
Muharemovic var í bosníska landsliðshópnum á HM. Hann var í byrjunarliðinu í fyrstu tveimur leikjunum í riðlakeppninni en var í banni gegn Katar í þriðju umferð þar sem hann fékk rautt spjald gegn Sviss í annarri umferð. Hann kom aftur inn í liðið þegar Bosnía tapaði gegn Bandaríkjunum í 32-liða úrslitum.

????????Meet our new guy from Bosnia & Herzegovina pic.twitter.com/j9sPb3CDuc
— Leeds United (@LUFC) July 17, 2026