Fotbolti.net
17.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Luis Romero aftur í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Luis Romero aftur í Víking Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Víkingur Ó.

Kantmaðurinn Luis Romero er kominn aftur í Víking Ólafsvík eftir að hafa spilað með Palm City síðasta árið.
Romero er 27 ára Spánverji sem gekk í gegnum akademíu Getafe.

Hann kom fyrst til Íslands árið 2022 og samdi þá við Víking Ólafsvík. Romero lék með Ólsurum í fjögur tímabil áður en hann hélt til Palm City í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Nú er hann snúinn aftur til Ólafsvíkur og er það mikill liðsstyrkur fyrir Ólsara. Romero hefur skorað þrettán mörk í 95 leikjum fyrir félagið í öllum keppnum.

Hann verður væntanlega klár í slaginn þegar Ólsarar mæta Hvíta riddaranum í kvöld. Víkingur Ólafsvík er í sjöunda sæti deildarinnar með 15 stig eftir tólf umferðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.