Fotbolti.net
17.07.26 - 17:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Manzambi til Aston Villa fyrir metfé (Staðfest)

Manzambi til Aston Villa fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Aston Villa

Aston Villa hefur staðfest kaupin á svissneksa sóknarmanninum Johan Manzambi frá Freiburg.

Sky í Þýskalandi segir að kaupverðið er um 60 milljónir punda sem gerir hann dýrasta leikmann í sögu félagsins. Villa borgaði 50 milljónir punda til að fá Amadou Onana frá Everton fyrrir tveimur árum.
Freiburg samþykkti 49 milljón punda tilboð frá Newcastle í leikmanninn en hann samþykkti að ganga til liðs við Villa.

Manzambi kemur til með að fylla skarð Youri Tielemans sem gekk til liðsvið Man Utd. Þá er Onana á meiðlalistanum eftir að hafa slitið krossband í leik með belgíska landsliðinu á HM.

Manzambi var í svissneksa landsliðshópnum á HM en hann kom við sögu í fjórum leikjum, skoraði þrjú mörk og lagði upp tvö. Hann kom ekkert við sögu í síðustu tveimur leikjum liðsins vegna meiðsla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.