Shkelzen strax í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Shkelzen Veseli er genginn í raðir Vals frá uppeldisfélaginu Leikni.
Samningur Shkelzens var að renna út eftir tímabilið en félögin komust að samkomulagi um að hann gengi til liðs við Hlíðarendafélagið strax í sumarglugganum.

Shkelzen er 22 ára miðjumaður sem er uppalinn í Leikni. Hann hefur skorað fjögur mörk á tímabilinu. Í fyrra skoraði hann sex mörk í deild og bikar.
Hann hefur leikið allan sinn feril með Leikni ef frá er talið tímabilið 2022 þegar hann var á láni hjá Þrótti Vogum.
Shkelzen var ekki í leikmannahóp Leiknis í gær sem mætti Aftureldingu. Leiknum lauk með 3-2 sigri Mosfellinga.