Fotbolti.net
17.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Steingrímur Ingi til Levanger (Staðfest)

Steingrímur Ingi til Levanger (Staðfest)
Canon

Mynd: Barton College

Markvörðurinn Steingrímur Ingi Gunnarsson hefur samið við norska C-deildarfélagið Levanger, en hann kemur frá Bandaríkjunum.
Steingrímur er 25 ára gamall og spilaði tólf leiki hér heima með Magna ásamt því að hafa spilað með 2. flokki KA.

Hann spilaði í háskólaboltanum hjá Barton-skólanum í Norður-Karólína ásamt því að leika með Nona FC og Tampa Spartans, en hann er nú mættur til Noregs.

Markvörðurinn hefur samið við Levanger í C-deildinni, en hann þekkir vel til í Noregi eftir að hafa búið þar um árabil og spilað með Steinkjer.

Levanger er í öðru sæti C-deildarinnar með 27 stig eftir tólf umferðir.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.