Fotbolti.net
17.07.26 - 11:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Viktor Nói til Njarðvíkur (Staðfest)

Viktor Nói til Njarðvíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Viktor Nói Viðarsson er genginn í raðir Njarðvíkur á lánssamningi sem gildir út tímabilið. Viktor Nói kemur frá FH þar sem hann hefur komið við sögu í tíu leikjum í sumar. Hann var ónotaður varamaður í sigri FH gegn Val í Bestu deildinni um síðustu helgi.

Viktor er 19 ára miðjumaður sem samdi við FH í vor eftir að hafa verið á mála hjá Gent í Belgíu.

Hann á að baki átta leiki fyrir íslenska U19 landsliðið en þar áður hafði hann leikið með unglingalandsliðum Belgíu.
Viktor er sonur fyrrum landsliðsþjálfarans Arnars Þórs Viðarssonar.

Hann er kominn með leikheimild með Njarðvík og má spila í kvöld þegar Njarðvík heimsækir Fylki í stórleik í Lengjudeildinni. Sá leikur hefst klukkan 19:15.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Fylkir13+927
3HK14+625
4Þróttur R.13+1224
5Vestri14-121
6Njarðvík13+420
7Leiknir R.14019
8Grótta13-419
9Grindavík13-313
10ÍR14-1112
11Völsungur13-168
12Ægir14-188
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.