Fotbolti.net
17.08.04 - 12:46
Elvar Geir Magnússon

Kaviedes til Crystal Palace (Staðfest)

Kaviedes til Crystal Palace (Staðfest)
Canon
Crystal Palace hefur fengið sóknarmanninn Ivan Kaviedes frá Ekvador á eins árs lánssamningi, með möguleika á að framlengja dvöl hans enn frekar. Kaviedes er fyrrum leikmaður Celta Vigo en er samningsbundinn liðinu Barcelona de Guayaquil í heimalandi sínu.
Eins og við sögðum frá í síðustu viku þá æfði þessi 26 ára leikmaður með Crystal Palace og náði að heilla framkvæmdarstjórann Iain Dowie. Hann mun líklega fá eldskírn sína með varaliðinu sem leikur gegn varaliði Ipswich í kvöld.

"Ég er í skýjunum með að fá tækifæri til að sanna mig á Englandi. Þá er ég ánægður með að ég fái það tækifæri með Crystal Palace. Allir hafa tekið frábærlega á móti mér, sérstaklega Iain Dowie. Hann er góður maður og ef einhver getur náð árangri með þetta lið þá er það hann" sagði Kaviedes.

Þrátt fyrir að fá þennan sóknarmann stefnir Dowie á að styrkja liðið enn frekar áður en félagaskiptaglugganum lokar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.