Fotbolti.net
17.08.19 - 21:08
Mist RúnarsdóttirFótbolti.net

Barbára Sól: Þvílík reynsla

Auglýsing
Barbára og Hólmfríður fagna marki þeirrar síðarnefndu

Barbára og Hólmfríður fagna marki þeirrar síðarnefndu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Mér líður ótrúlega vel. Það er geggjað að vinna með þessu liði. Við lögðum okkur allar fram, allan tímann og áttum þetta svo skilið,“ sagði Barbára Sól Gísladóttir, Selfyssingur og nýbakaðar bikarmeistari.
„Við vorum ákveðnar í að taka þennan bikar yfir brúnna og við gerðum það bara. Hann er á leiðinni eftir smá,“ sagði Barbára sem var að spila sinn fyrsta bikarúrslitaleik.

Hún hrósaði stuðningsfólki Selfoss og fannst magnað að spila á Laugardalsvelli.

„Það er geggjað. Þvílík reynsla og að vera með þetta fólk allan tímann við bakið á okkur var geggjað,“ sagði Barbára áður en hún hljóp inn í klefa til að undirbúa sig fyrir bikarpartý á Selfossi.

Hægt er að horfa á allt viðtalið við bikarmeistarann unga í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.